Skip to main content

Hver erum við

Við erum Elísabet og Eiður, stofnendur NÖRDlab.


Við erum bæði ættuð úr Vogunum, þó Eiður telji sig í dag vera orðinn meiri Keflvíking. Elísabet verður hins vegar alltaf Vogamær, þrátt fyrir að hafa búið í Danmörku í 17 ár.


Við höfum alltaf haft mikinn áhuga á tækni, lausnum og nýjum verkefnum. Okkur finnst einfaldlega gaman að skapa hluti, leysa vandamál og finna leiðir sem virka í raunveruleikanum.


Eiður starfar sem kerfisstjóri hjá Blue Car Rental og Elísabet er kennari við Stóruvogaskóla. Með ólíkan bakgrunn sameinum við tæknilega hugsun, skipulag og lausnamiðaða nálgun í þeim verkefnum sem við tökum að okkur.


Við leggjum mikla áherslu á að lausnir séu bæði praktískar og hagkvæmar. Það skiptir okkur máli að hanna kerfi og lausnir sem gera gagn án þess að kostnaður fari úr böndunum.